18 júlí 2008

Átakið búið

Þá er 10 vikna átaki í ræktinni lokið. Ég fór á 2 super form námskeið í röð hjá Goran á Grand Spa og byrjaði þar strax eftir hvítasunnu. Síðan þá eru foknir 8 cm af mjöðmunum og 6 af maganum. 3 kíló af fitu hafa ákveðið að færa sig yfir í vöðvamassann en vigtin hefur hins vegar stigið upp um rúmlega kíló. Formið hefur farið frá því að vera arfa lélegt og slefar nú upp í gott ástand. Ég ætla að halda áfram að æfa í Grand Spa þangað til ég fer út og Esjan er stóra verkefni næstu viku ef veðurguðirnir lofa. Þegar ég verð komin í heimsborgina heldur líkamsræktin áfram enda ætlunin að vera í súperformi þegar líður að jólum. Ég ætla að komast í fleiri föt en bara kjólinn fyrir jólin.

Mér finnst ástæða að hrósa fyrir það sem vel er gert og það er óhætt að halda því fram að Grand Spa sé frábær staður. Þar hefur verið haldið vel utan um mig og passað upp á að ég væri að stunda þá hreyfingu sem ég þyrfti miðað við mín veikindi. Mataræðið hefur líka verið tekið í gegn og ég fer örugglega að breytast í kalkríkan próteinbolta miðað við allt kalkið og próteinið sem ég þarf að borða. Í fyrsta skiptið á ævinni er ég að kaupa mér kort í líkamsræktarstöð en það er óhætt að segja að ég hafi ekki alveg verið að fíla mig á þeim vígstöðvum hingað til. Grand Spa er hins vegar undantekningin sem sannar regluna. Hvort að það er smæðin, handklæðin eða heitu pottarnir og nuddið skal ég ekki segja en ég er búin að finna stað við mitt hæfi og þar dugar ekkert minna en það besta ;-)

1 ummæli:

Paula Mastop Bentes sagði...

Hæ áhorfendur Fáðu þér tómt hraðbankakort sem virkar í öllum hraðbankum um allan heim.. Við erum með sérforrituð hraðbankakort sem hægt er að nota til að hakka hraðbanka, hraðbankakortin er hægt að nota til að taka út í hraðbanka eða strjúka, í verslunum og POS. Við seljum þessi kort til allra áhugasamra kaupenda um allan heim, kortið hefur daglegt úttektartakmark upp á $1.000 í hraðbanka og allt að $20.000 eyðsluhámark í verslunum eftir því hvers konar kort þú pantar fyrir, við erum hér fyrir þig hvenær sem er, hvaða dag sem er. Tölvupóstur; (blankatm002@gmail.com) Ég er þakklátur Mike því hann breytti sögunni minni allt í einu. Kortið virkar í öllum löndum nema, hafðu samband við hann núna (blankatm002@gmail.com)