03 mars 2007

Ég er búin að komast að því

hvaða bréfalúga það er sem hefur haldið fyrir mér vöku ófáar næturnar undanfarnar vikur. Mín reyndist saklaus af þessu öllu saman og ég fór og klessti kennaratyggjói á lúguna hjá einum nágrannanum í gærkvöldi þegar lætin voru að byrja og svaf eins og engill í nótt. Nágranninn var reyndar ekki heima en ég vona að hann fyrirgefi mér framhleypnina.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bið aö heilsa ömmu. Ef ég væri nágranninn mundi ég klessa tyggjói í skráargatið til að hefna mín. Kannski fannst honum þetta bara róandi!!

Erla Perla sagði...

Ég geri það pottþétt ef hann tekur kennaratyggjóið af :p

Annars skila ég kveðjunni :)