06 október 2007

Maður kallar nú ekki allt ömmu sína

Mér hefur alltaf þótt þetta frekar fyndið máltæki enda hef ég aldrei kallað neinn annan ömmu en mínar ágætu ömmur í gegnum tíðina. Núna á ég hins vegar bara eina ömmu og eins og sjá má hér er ekkert að ástæðulausu að maður kallar ekki allt ömmu sína.... Hún er bara flottust.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ Erla
Já það er alveg satt það eiga ekki allir jafn flotta mömmu og ég og er hún rúmlega 70 ára
Hafið það gott
Bið að heilsa
Kolla

Nafnlaus sagði...

Haha langflottust alveg á leið í salíbunu!

-Hjördís

Erla Perla sagði...

Mér fannst samt best að þegar hún sagði mér um daginn að hún væri búin að prufukeyra rennibrautina að það hefði nú vantað allt fúgt í þetta því hún fór ekki nógu hratt!