17 mars 2009

Já auðvitað...

Nektardans og tískusýningar eru auðvitað sami hluturinn... Ef mig misminnir ekki lét þessi ágæti maður líka hafa það eftir sér einhvern tíman að hann væri að gera mikið góðverk með því að flytja inn stelpur frá austantjaldslöndunum til þess að strippa fyrir sig. Væri að bjarga þeim frá bágum kjörum í heimalandinu. Og það er náttúrulega það sem allt góðhjartað fólk gerir, lætur þá sem eru í nauð strippa fyrir peninga. Kemur mansali nákvæmlega ekkert við! Auðvitað...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ Erla mín
Langaði bara til þess að kasta á þig kveðju. Sé á blogginu að þú hefur það fínt en greinilega nóg að gera!!! Hérna í Víkinni er lítill snjór þó svo að fólk sé sent út úr húsum sínu. Við litla fjölskyldan höfum það gott.
Bestu kveðjur, Ella